Ađalvalmynd

Auglýsing

Nýtt blogg!Ása Ninna Katrínardóttir

Kemur á óvart, ég með nýja bloggsíðu.

En hún er: www.ninnan.blog.is

Ég á eftir að tæma ýmislegt út af þessari áður en ég eyði henni samt.

Og já, það er lykilorð á nýju síðunni, þið fáið það bara hjá mér. Ef ég gef ykkur lykilorðið vil ég biðja ykkur vinsamlegast um að láta ekki aðra fá það, nema spyrja mig fyrst hvort það sé í lagi.

En ég kveð að sinni, sjáumst á nýja blogginu!

Kveðja, Ninna. Svalur

Ný fćrsla!Ása Ninna Katrínardóttir

Held það sé kominn tími á nýja færslu hérna á blogginu, hehe. Ég er stödd í hátíðasal Háskóla Íslands í aðalbyggingunni. Ég er þó ekki á einhverjum fínum fyrirlestri eða veislu eða neitt slíkt, ég er bara í tíma sko. Það er svo mikil stofuekla í þessum blessaða skóla að við erum á töluverðu flakki alltaf hreint. Sem getur verið pirrandi fyrst ég er ekki komin með netið heima, stundum kemur bara inn á Ugluna kvöldið áður hvar við eigum að mæta í tíma kl 8 morguninn eftir!

En nóg um það. Það er allt við það sama á Smiðjustígnum, við erum allar á kafi í lærdómi og vinnu, aðallega ég þó, þá meina ég vinnuna. Ég er m.a.s að fara að vinna eitthvað í FairTrade  búðinni hjá mömmu hennar Bríetar sem er ágætt, ég vinn mér inn fyrir jólagjöfunum. Ég hvet alla til að kíkja þangað fyrir jólin, fullt af flottum vörum á góðu verði OG við stuðlum að sanngjörnum viðskiptum með því að kaupa vörur þar! ;)

Jóakim dafnar vel, við þurfum að fara að gelda hann en sjáum ekki fram á að geta borgað 13000 kr, fátæku námsmeyjarnar, og svo finnst okkur líka svo grimmt að klippa af honum litla pungsa svo við ætlum aðeins að sjá til. Við vitum reyndar að hann verður grumpy og leiðinlegur ef við gerum það ekki, en við ætlum samt að þrjóskast aðeins við og sjá til, það getur vel verið að hann verði bara rólegur. Hann er farið að langa svo til að fara út, Karen var að gera eitthvað við rúmið sitt um daginn svo það var á hliðinni, svo hann komst upp á það og beint út um gluggann! Nú, eins og flestir vita þá búum við í risíbúð á 4ja hæða húsi svo að Karen fékk sjokk og einhvernveginn náði að teygja sig útum gluggann, ná í aðra afturlöppina á honum og draga hann inn. Svo vældi hann þessi ósköp, hann langaði svo út aftur. Við ætlum að kaupa á hann svona beisli og taum svo við getum farið með hann út hérna í miðbænum. Mér er sama þó það sé kjánalegt, hann verður að fara út!

Annars er ég, á milli þess sem ég vinn, sef og læri, að skrifa leikrit og bók, ég veit ekki alveg hvernig ég hef tíma í þetta allt, hehe. Ég er ofurkona! Neinei, ég skrifa nú bara þegar ég hef tíma... sem er kannski ekkert svakalega oft en ég er heldur ekkert að drífa mig.

En ætli þetta dugi ekki í bili.

Kveðja, Ninna. Svalur

Útlendingar á Íslandi.Ása Ninna Katrínardóttir

Eins og allir vita þá er svakalega mikið af útlendingum á Íslandi, og þá sérstaklega Pólverjum. Mér finnst persónulega að það sé kannski mögulega komið of mikið af útlendingum hingað og það megi setja einhver takmörk eða eitthvað slíkt á það hverjir koma inn til landsins og fá atvinnuleyfi o.s.frv.
Það fer þó alveg svakalega í taugarnar á mér að þegar fólk les og heyrir fréttir af árásum, nauðgunum o.fl. í þeim dúr, að það hugsi og segi alltaf "helvítis Pólverjar". Jú, vissulega nauðga þeir og lemja fólk, en það gera Íslendingar líka. Var ekki líka há nauðgunartíðni áður en landið fylltist af útlendingum? Jú.
Mér finnst gott og blessað að fólk komi hingað til lands að vinna. Það býr við bág kjör í sínu heimalandi og þá er auðvitað sjálfsagt að leita eitthvert annað, eftir nýjum tækifærum. Þetta gerum við Íslendingar líka, kannski ekki í sama tilgangi. Íslendingar eru að fara út í ýmiskonar nám og fleira í þeim dúr. Erum við þá helvítis útlendingar í þeim löndum sem við förum til? Viljum við heyra það? Við þurfum aðeins að hugsa hvernig við tölum um útlendinga vegna þess að við erum útlendingar líka, í öðrum löndum.
Ég á vinkonu, sem ég ætla ekki að nafngreina, sem er með mikla fordóma gagnvart útlendingum, og mér finnst þessir fordómar gjörsamlega tilgangslausir. Hún fór á kaffihús fyrir stuttu og þar var útlend þjónustustúlka. Þjónustustúlkan kemur að borðinu hennar og segir "Hello, what can I get you?" Þá svarar vinkona mín "You can get me an icelandic waiter, please." Mér finnst nú kannski í lagi að biðja um íslenskan þjón ef þú kannt ekki ensku, en þessi vinkona mín er altalandi á ensku og gott betur en það, og mér finnst þetta bara helber dónaskapur. Vissulega finnst mér að þeir útlendingar sem koma hingað og ætla sér að dvelja hér í lengri tíma eigi að læra íslensku, en það er nú ekki hlaupið að því að þau kunni hana einn tveir og nú þar sem íslenskan er nú með þeim erfiðari tungumálum sem fólk lærir.
Við vinkonurnar verslum yfirleitt í sömu kjörbúðinni hér í borginni, og þar vinnur á kassa Pólverji, maður um fertugt. Að mínu mati mjög duglegur og kurteis maður, og talar íslensku frekar bjagað, en talar auðvitað eins vel og hann getur, og er greinilega í íslenskunámi, því mér finnst ég heyra mun á honum í hvert skipti sem ég fer í búðina. Ég reyni yfirleitt að fara í röðina á hans kassa því hann er svo kurteis og þægilegur. Ein vinkona mín, sem ég vil ekki nefna, fór um daginn með mér í þessa verslun og þegar við fórum út fór hún að fussa og sveia yfir helvítis útlendingum út um allt. Hún sagði að það ætti ekki að bjóða manni upp á svona þjónustu og að útlendingarnir kæmu hingað og stælu okkar störfum. Þá spurði ég hana hvort hún vildi vinna þarna á kassa, og svarið var nei. Hún vildi þá frekar bara hafa færri verslanir, ef svona illa gengi að manna verslanirnar með íslensku fólki. En með allri virðingu fyrir þessari vinkonu minni (ég elska þig mjög mikið!) þá held ég að íslendingar hafi ekki þolinmæði í færri verslanir. Ég vinn nú sjálf í verslun og fólk getur orðið alveg svakalega óþolinmótt og hundleiðinlegt ef það fær ekki afgreiðslu einn tveir og tíu sko.
Niðurstöður mínar af þessu bloggi eru því aðallega þessar:
* Útlendingarnir eru ekki að stela okkar störfum, þeir eru að vinna störf sem enginn íslendingur nennir að vinna.
* Þeir eru ekkert verri en við í slagsmálum, nauðgunum og þess háttar.
* Ég vil að þeir sem flytji hingað læri málið (ég veit að það tekur tíma) og aðlagi sig íslenskri menningu, samt ekki algjörlega (ef ég flytti til útlanda myndi ég samt halda íslensk jól t.d.)
* Það ætti (kannski) að setja einhver takmörk á hverjir fá að flytja hingað.
* Til þess að fólk aðlagist íslenskri menningu þurfa íslendingar að "mingla" við það, því ef þau fá bara andúð og fordóma í andlitið þá auðvitað hópa þau sig bara saman og gera ekkert í því að mingla við okkur.
* Ég er pottþétt að gleyma einhverju, ég bæti því þá bara inn seinna.

Kveðja, Ninna. Svalur

Dammdamm....Ása Ninna Katrínardóttir

Ég veit að ég hef sagt það áður, en ég þoli ekki fyrirsagnir á bloggum!

Ég er annars bara í tíma, er í Inngangi að þjóðfræði, sem er minn uppáhalds kúrs, er alveg búin að sjá það. Kristín Einarsdóttir kennir okkur þennan kúrs og hún er sko algjört æði! Hún var/er að vinna á RÚV, og við erum t.d. að fara að gera útvarpsþátt sem verður útvarpað eftir áramót! ;) Hún minnir mig soldið á Síu frænku, svo að kannski þess vegna fíla ég hana svona í tætlur ;)

Annars er allt gott að frétta, ég er bara að læra og vinna til skiptis og ekki eru mikil tíðindi hér á bæ. Ég er að fara að halda teiti annað kvöld fyrir þjóðfræðinema og ég held að það verði mjög gaman.
Í gær fór ég svo á bjórkvöld hjá Homo og Þjóðbrók, en það eru nemendafélög mannfræði - og þjóðfræðinema. Djammaði semsagt með Orra frænda, sem var mjög gaman.

Ég ætlaði að blogga soldið um fordóma á Íslandi í dag, en það er svaka mikið að gerast í þessum tíma svo ég ætla að fara að fylgjast með og postpona þessu fordómabloggi þar til seinna. ;)

Kveðja, Ninna. Svalur

Fyrsta verkefni mitt í HÍ!Ása Ninna Katrínardóttir

Ég var að fá til baka fyrsta verkefnið sem ég hef nokkurn tíma gert í háskóla...

OG

Ég

fékk

8 !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hlæjandi

Þess má geta að ég bjóst við svona 5 eða lægra...

Kveðja, Ninna. Svalur

ŢjóđsagnafrćđiÁsa Ninna Katrínardóttir

Ég er í tíma hjá henni Aðalheiði, í Þjóðsagnafræði. Er komin með tölvuna mína og orðin nettengd - í skólanum. Er samt mjööög pirruð, því ég kemst ekki á msn... ég er búin að reyna ALLT og fylgja öllum leiðbeiningum en þori bara varla að fikta meira, ætla að biðja Björn Þór að kanna málið fyrir mig.

Ég hef annars voða lítið til að blogga um þessa dagana, ég er bara á fullu í skólanum og vinnunum, ég er að fara að vinna brjálæðislega um helgina... vinna 22-07 á föstudagskvöld (Kofinn), 10-18 laugardag(átvr), og svo annað hvort 20 eða 22 til 07 laugardagskvöld (Kofinn). Bara hressandi!

Svo er ég að undirbúa ritgerð og fyrirlestur í þjóðsagnafræði, fyrirlestur og útvarpsþátt í innganginum og svo stórt verkefni í vinnulaginu. Það er ekkert grín að vera svín og vera í háskóla skal ég segja ykkur!

Það er samt alveg merkilegt, þegar ég var í menntaskóla, þá fannst mér þetta nógu erfitt, en núna sér maður, að það var stafað oní mann allt sem maður þurfti að gera. Ef maður átti að skila verkefni, þá var maður minntur á það svona 5 sinnum á viku liggur við. Allir kennararnir þekktu mann og maður var persóna!
Núna er ég bara eitthvað númer, kennarinn þekkir mig ábyggilega ekki í sjón og maður á að vita allt! Ég veit ég veit, ég er í háskóla, en þessir kennarar vita nú alveg að við erum nýnemar og flest okkar hafa ekki verið í háskóla áður. Ég er ekkert að bugast eða neitt þannig, ég höndla þetta alveg, en þetta er samt svoldið pirrandi.

En ég ætla að halda áfram að glósa og fylgjast með í þessum blessaða tíma.

Kveðja, Ninna. Svalur

Jćja.Ása Ninna Katrínardóttir

Þá er það nýtt blogg, og ný könnun fyrir hana Unni mína. Sem má btw alveg fara að koma aftur í heimsókn! ;)

Ég er annars í tölvutíma núna, áttum að gera tímaverkefni í Innganginum sem ég er barasta búin með, er svo dugleg sko ;)

Annars er lítið að frétta, er að fara að vinna á eftir og var að vinna í gær, er svo að vinna alla helgina bæði á Kofanum og í Vínbúðinni, ásamt því að vera að undirbúa ýmis verkefni og fyrirlestra, ég er alveg búin að komast að því að ég er duglegust ef ég hef svona mikið að gera og skipulegg tímann vel.

Ég ákvað þó að vera skynsöm og sleppa því að vera með í Stúdentaleikhúsinu þessa önnina, mér finnst það ótrúlega sárt því mig langaði svo að vera með, en ég bara treysti mér ekki til þess svona fyrstu önnina í háskóla. Ég ætla að sjá til eftir áramót.

Hann Einar minn litli bróðursonur varð 1 árs þann 13. sept sl., til hamingju með daginn sponsið mitt! Það er ekkert smá sem tíminn líður hratt! Mér finnst svo stutt síðan Álfhildur sagði mér að hún væri ólétt að honum! En svona er lífið, flýgur áfram.

En ég ætla að fara að koma mér heim og svo að vinna.

Kveðja, Ninna. Svalur

FyrirsögnÁsa Ninna Katrínardóttir

Af hverju þarf maður alltaf að skrifa eitthvað í fyrirsögn á bloggið? Það er í rauninni mjög pirrandi. Í þessari færslu ætla ég til dæmis að fjalla um hitt og þetta, og þá get ég ekkert skrifað það ALLT í fyrirsögnina, það kæmi bara asnalega út. Ég legg til að við berjumst fyrir því að leggja niður bloggfyrirsagnir.

En yfir í annað. Ég var að kaupa mér tölvu! Hlæjandi Ég fæ hana reyndar ekki fyrr en á morgun eða hinn, en það verður að hafa það. Þetta er alveg voða fín tölva sem frændi hennar Hildar Seljan valdi fyrir hana, svo ég ákvað bara að hermikrákast og fá mér eins. Hún er svona: http://tolvulistinn.is/vara/12

Ég var á kynningarfundi hjá Stúdentaleikhúsinu áðan. Ég veit reyndar ekki alveg hvernig ég á að koma þessu inn í tímaáætlunina hjá mér, ásamt vinnu og lærdóm, en mig langar alveg svakalega að vera með. Leikstjórinn heitir Hlín Agnarsdóttir, einhver sem kannast við hana (Guðfinna?)? Mér leist allavega mjög vel á þetta svo ég ætla að mæta allavega þessa viku og sjá hvernig þetta verður og svona. Annars veit ég að ég vinn best undir álagi svo kannski er þetta bara ágætis viðbót.

Innflutningspartýið á laugardaginn gekk vel, takk fyrir okkur allir saman og takk fyrir komuna. Núna er orðið mjög fínt hjá okkur, þeir sem enn ekki hafa komið, KOMIÐI Í HEIMSÓKN! Engar afsakanir teknar gildar sko!
Við búum líka á svo afar hentugum stað, svo það er ekki hægt að afsaka sig með því að þetta sé eitthvað afskekkt eða eitthvað!

En núna ætla ég að fara að koma mér heim til mín í sturtu og svona kósýheit.

Kveðja, Ninna. Svalur

Orđin of fullorđin!Ása Ninna Katrínardóttir

Góðan daginn. Ég sit núna á Þjóðarbókhlöðunni og er að læra! Ji minn hvað ég er orðin fullorðin!

Byrjaði í skólanum í dag og það er strax byrjað að hlaða á okkur verkefnum, ég var að enda við að lesa brjálað langan texta, sem ég þarf svo að lesa aftur og aftur, og gera að lokum úrdrátt úr... fyrir mánudaginn. Svo ég ákvað að drífa bara í því, betra að vera búin að hlutunum strax.

Ég ætla að temja mér það í vetur að vinna alltaf verkefnin um leið og þau eru sett fyrir, ég er m.a.s farin að huga að næsta verkefni, sem er ekki einu sinni búið að kynna, en ég las bara um það á kennsluáætluninni. Svo fer ég á miðvikudaginn í tíma í hinum kúrsunum mínum, en ég er bara í 3 kúrsum, en þeir eru allir 5 eininga kúrsar, svo það er nóg að gera.

Er ekki skemmtilegt að lesa um nám og lestur?

Í allt annað. Íbúðin okkar er loksins aaaalveg að verða fín, ég fór loksins í gær og keypti málningu á herbergið mitt og restina af stofunni, ætlum við að nota þessa viku í að klára að mála og gera allt fínt fyrir laugardaginn! En þess má geta að ef þið komist ekki í hið ofurmagnaða arty farty partý um kvöldið, þá verðum við eitthvað heima yfir daginn, þá er ég svona aðallega að vísa til mömmu og pabba og svona, þið skiljið. Ég verð reyndar að vinna til 16:00 en Bríet og Karen verða líklegast heima allan daginn.

En mér er ekki til setunnar boðið, ég skrapp bara aðeins í tölvu til að kíkja á Ugluna, en ætla að halda áfram að lesa.

Kveðja, Ninna. Svalur

Nýtt blogg...Ása Ninna Katrínardóttir

Loksins!

Veit að ég þarf að segja frá alveg helling af stöffi en tölvan sem ég er að skrifa á er með leiðinlegt lyklaborð svo ég segi bara aðalatriðin!

* Ég er hætt við að fara í hjúkrun, uppgötvaði það að þetta á ekki við mig og þetta er eitthvað sem mig langar ekki að vinna við í framtíðinni.

* Í staðinn skráði ég mig í þjóðfræði til 60 eininga og fjölmiðlafræði til 30 eininga.

* Með náminu langar mig að undirbúa mig undir inntökupróf í leiklist, annaðhvort hérna heima eða úti.

* Ef ekki, þá langar mig að taka mastersnám í blaða- og fréttamennsku eftir að ég hef lokið við BA námið.

* Ég verð að vinna með skólanum í Vínbúðinni og svo ætla ég að finna mér kvöldvinnu einhversstaðar í miðbænum, líklega á kaffihúsi eða einhverju svipuðu.

* Við erum byrjaðar að mála á Smiðjustígnum, finally.

* Það verður allt tilbúið 8. sept, en þá verður innflutningspartý þar sem verður "arty farty" þema, okkur fannst það viðeigandi þar sem við erum fluttar í 101.

* Nenni ekki að skrifa meira á þetta leiðinlega lyklaborð.

* Ég ætla að reyna að kaupa mér tölvu bráðum.

Hvernig líst ykkur á þetta allt saman?

Kveðja, Ninna.Svalur
Síđa 1 af 7